Þann 9. apríl 2011 fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla um gildi laga nr. 13/2011.
Á kjörskrá voru 232.422 kjósendur og greiddu 175.114 atkvæði. Niðurstaða talningarinnar var sú að 69.462 svöruðu því að lögin ættu að halda gildi en 103.207 að þau skyldu falla úr gildi. Ógild atkvæði voru 2.445, þar af 2.039 auðir seðlar en 406 atkvæði var ógilt af öðrum ástæðum.
Kjörsókn var 75,3% og lögunum var hafnað með 58,9% greiddra atkvæða.
ADVICE hópurinn vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra fjölmörgu sem lögðu lið og studdu baráttuna.


